Grunnnámskeið ITS Macros

Næstu námskeið eru klár og þú getur valið dagsetningu sem hentar þér. Tryggðu þér pláss!

Við byrjum öll námskeið með ONLINE undirbúningsfundi sem haldinn er í gegnum fjarfundarbúnað á auglýstum degi fyrir upphafsdag (fundurinn er lang oftast sunnudaginn fyrir upphafsdaginn en rétt tímasetning kemur fram í upphafspósstinum ). Fundarboð og aðgangur að appi verður sent út á netfang þátttakenda áður.

Æfingaprógram fylgir með nýskráningum

Öllum Macros grunnnámskeiðum fylgir 8 vikna æfingaprógramm frá Ingu Þóru Ingadóttur. Inga er íþróttafræðingur og einkaþjálfari og margreyndur keppandi í hinum ýmsu íþróttagreinum.

Æfingarnar eru hugsaðar fyrir alla og þannig að þú þurfir lágmarksbúnað.